Tveir montrassar

Thursday, September 24, 2009

Tveir góðir gullmolar

Þegar við Kristinn náðum í Ingu í leikskólann í dag þá sagði ég við Ingu að það væri nú bara gott veður úti. Inga svaraði um hæl: "Já, ég finn bara enga vindhviðu."

Inga Bríet fékk að sofna í sófanum hjá mér í kvöld því pabbi hennar er í fótbolta. Áður en hún sofnaði vorum við mæðgurnar að ræða jólin og jólasveinana. Ég sagði henni að jólasveinninn gæfi bara börnum sem svæfu í sínu rúmi í skóinn. Þá sagði Inga, sem veit fátt betra en að sofa í örygginu á milli foreldra sinna: "Ég þarf ekkert að fá í skóinn, ég á svo mikið dót".

4 Comments:

  • At 12:22 PM , Anonymous Anonymous said...

    Hún Inga mín er nú aldrei kjaftstopp! Yndisleg og klár þessi stelpa :)

    Kv. ESK

     
  • At 8:53 AM , Blogger Unknown said...

    hahahah... minntu hana á þetta aftur fyrir jólin og sjáðu hvað hún segir þá ;)

     
  • At 3:09 PM , Blogger herborg said...

    :)

    einmitt:) hehehe

     
  • At 9:08 AM , Anonymous Ásrún said...

    nægjusami litli engill :)

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home