Tuesday, November 17, 2009
Tuesday, November 10, 2009
Þrír góðir gullmolar....
- Við fórum með 2 skókassa í söfnuna "jól í skókassa" um seinustu helgi. Ég sagði við Ingu þegar við vorum að kaupa tannbursta og tannkrem, til að setja í skókassann, að við ætluðum að gefa börnum sem ættu ekki mömmu og pabba þetta. Þá sagði sú stutta: " Fá þau að bursta sig sjálf??"
- Inga Bríet í aftursætinu: Mamma, veistu, regnboginn þurrkar rigningu því sólin sko hitar regnbogann. Sólin er sko mamma regnbogans:)
- Diskarnir voru ennþá á borðinu frá því í gærkvöldi þegar við komum fram í morgun. Þá sagði Inga Bríet: Mamma, við erum bara eins og Kasper, Jesper og Jónatan. Við gleymum bara að taka til.....
Friday, November 06, 2009
Thursday, November 05, 2009
Mamma, Dittinn meira kakó.....
svona er pilturinn orðinn duglegur að tjá sig.
Hann segir líka lekkoli sem þýðir að sjálfsögðu leikskóli:). Hann er alltaf að læra ný nöfn og segir nöfnin á nokkrum krökkum á deildinni sinni og á deildarstjóranum. Hann kann líka að segja Bergur "Beggu" og Pétur "Pedu" , þó hann kjósi nú að stríða honum með því að kalla hann afa núna:).
Hann segir bíll, voff voff, kubba og svo segir hann "daginn" þegar við mætum fólki á göngu:).
Einn gullmoli frá Ingu Bríeti í lokinn. Hún spurði mig hvort íþróttaálfurinn ætti bara þessu bláu föt. Ég jánkaði því. Þá sagði hún strax: "Sullar hann þá aldrei á sig??"