Tíminn flýgur
Tíminn líður hratt þessa dagana. Ég er komin rúmar 36 vikur á leið sem þýðir að það styttist óðum í montrass númer 2. Inga kyssir bumbuna reglulega og segir að litla systkinið hennar sé inni í bumbunni. Segir líka að bráðum komi það til okkar:).
Fyrir settan dag er margt að gerast hjá okkur fjölskyldunni. Bæði það að við erum að fara að flytja og svo verður frumburðurinn tveggja ára innan skamms. Mér finnst ótrúlega stutt síðan að við héldum upp á eins árs afmælið! Inga Bríet er búin að panta Latabæjarköku og talar mikið um að bráðum eigi hún afmæli. Latibær er alveg í uppáhaldi hjá henni!
Núna er svaka sport hjá Ingu að hvísla. Hún hvíslaði t.d. að mér í fyrradag: "Fá kókómjólk, mamma líka, ekki sulla.....". Vill líka syngja "hvíslandi".
Ég skal henda inn einni bumbumynd fljótlega:) Sennilega samt ekki fyrr en eftir helgi, þar sem ég er búin að pakka myndavélasnúrunni......hehehhe

1 Comments:
At 9:25 AM , Anonymous said...
Mér finnst líka svo stutt síðan 1 árs afmælið var! ótrúlegt hvað tíminn flýgur.
Gangi ykkur vel í flutningunum, reyni að kíkja á ykkur ;)
-Maja-
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home