Tveir montrassar

Thursday, December 10, 2009

Piparkökudagur á leikskólanum hennar Ingu Bríetar:)


Inga mjög einbeitt en Kristinn smakkaði jafn óðum það sem hann skreytti:)

Tuesday, December 08, 2009

Kurteisi Kristinn

Þegar við vorum á leiðinni út úr dyrunum í leikskólanum í gær sagði ég við Kristin: Ætlarðu ekki að segja bless og takk fyrir daginn?
Þá sagði sá stutti hátt og snjallt: Takk fyrir daginn

Hann segir líka takk fyrir mig.

Hann sagði við mig þegar ég kom fram í morgun: Mamma búin lúlla:).

Hann bætir við sig orðum á hverjum degi og apar allt upp sem er sagt við hann. Áður en við vitum af verður hann orðinn altalandi:). Þá verður fjör!



Saturday, December 05, 2009

Fjör á náttfataballinu hjá Ingu Bríeti:)